Um störf.is
Fyrirtækið Störf.is rekur vefsíðuna www.störf.is sem er það vefsvæði sem líklegast er til að skila árangri við atvinnuleit. Vefsíðan býður notendum að leita í því stærsta safni atvinnuauglýsinga sem er til staðar á veraldarvefnum og með sanni má segja að engin önnur atvinnumiðlun á veraldarvefnum komist með tærnar þar sem www.störf.is hefur hælana.
Á veraldarvefnum eru tugir ef ekki hundruðir vefsíðna sem birta atvinnuauglýsingar. Þau fyrirtæki sem reka þessar síður eiga í harðri samkeppni um að fá að auglýsa störf á sínum miðlum og auglýst störf er því að finna mjög víða. Þetta fyrirkomulag ýtir undir að erfitt og tímafrekt getur verið fyrir atvinnuleitendur að nýta veraldarvefinn til atvinnuleitar auk þess sem tímafrekt er að fylgjast með því ef ný áhugaverð atvinnutækifæri koma fram.
Störf.is leysir þetta vandamál. Á vefsíðu okkar er að finna leitarvél sem leitar að atvinnutækifærum á m.a. flestum áðurnefndum vefmiðlum, heimasíðum fyrirtækja landsins og heimasíðum opinberra stofnana. Einnig býðst notendum að vista ákveðin leitarskilyrði og fá um það tilkynningu ef nýjar atvinnuauglýsingar birtast sem passa við vistuð leitarskilyrði. Þannig eru atvinnuleitendur komnir með virkt eftirlit með störfum sem henta þeim.

