Markaðsgreining

Atvinnumarkaður

Auglýst störf vikuna 14.-20. febrúar

Alls voru 113 störf auglýst á íslenskum vefsvæðum vikuna 14.-20. febrúar 2010. Líkt og undanfarnar vikur krefst stærstur hluti auglýstra starfa æðri menntunar eða sérfræðiþekkingar.

vika-6-mynd-11

Enn hækkar hlutfall auglýstra starfa á vegum ríkis og sveitarfélaga og reyndist þau vera 50,4% auglýstra starfa í síðustu viku. Voru 57 störf auglýst á vegum ríkis og sveitarfélaga á umræddu tímabili og á hið opinbera  í fyrsta skipti hlut að máli  meira en helmings auglýstra starfa síðan hafið var að halda utan um þessa tölfræði. Auglýst störf á almennum vinnumarkaði voru þó litlu færri, eða 56.

vika-6-mynd-42

Á grafi hér að neðan má sjá fjölda auglýstra starfa flokkuð niður eftir starfsemi atvinnurekenda. Fyrirtæki er starfa á markaði verslunar og þjónusta eru helst að bæta við sig fólki en afar fáatvinnutækifæri stóðu til boða í iðn- og tæknigreinum, sjávarútvegi, fjármálalífinu sem og víðast annars staðar. Eins og sjá má er hvað líklegast að fólki standi atvinnutækifæri til boða hjá ríki og sveitarfélögum.

vika-6-mynd-51

Atvinnuleysi

Samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar þá jókst atvinnuleysi lítillega á milli vikna. Er þetta sama þróun og  hefur verið undanfarnar vikur.

Fjölgun í hópi atvinnulausra var í öllum landshlutum nema á Suðurlandi. Líkt og í síðustu viku fjölgaði atvinnulausum hlutfallslega mest á Austurlandi, eða um 2,67%.

vika-6-mynd-22

Hér að neðan má sjá fjölda auglýstra starfa á tímabilinu 14.-20. febrúar  í hverjum landshluta fyrir sig, sem og hversu margir eru um hvert auglýst starf í landshlutanum.

vika-6-mynd-32

Senda á Facebook


Senda á Facebook

Atvinnumarkaður, 7.-13. febrúar

Atvinnuauglýsingar 19. nóvember 2009
Atvinnuauglýsingar 15. október 2009
Atvinnuhorfur í september 2009
Atvinnuhorfur í ágúst 2009
Atvinnuauglýsingar 21. september 2009
Atvinnuhorfur í júlí 2009
Atvinnuauglýsingar 4. ágúst 2009
Atvinnuhorfur í júní 2009
Atvinnuauglýsingar 22. júní 2009
Atvinnuhorfur í maí 2009
Atvinnuauglýsingar 8. júní 2009
Atvinnuauglýsingar 1. júní 2009
Atvinnuauglýsingar 25. maí 2009
Atvinnuauglýsingar 14. maí 2009
Atvinnuhorfur í apríl 2009