Við í Fylgifiskum leitum að liprum starfsmanni til þess að sjá um akstur milli búðanna okkar og til viðskiptavina fyrri hluta dags og í afgreiðslu og önnur störf í verslunum okkar eftir að þeim störfum líkur. Þetta er fjölbreytt starf því enginn dagur er eins hjá okkur. Sæktu um ef þú vilt vinna með skemmtilegu fólki á lifandi vinnustað.
Æskilegt er að viðkomandi tali íslensku en þó ekki nauðsynlegt.
Staður: Fylgifiskar Nýbýlavegi 4
Fjöldi starfa: 1
Laun: Samkvæmt samkomulagi
Vinnutími: 9-17.30 (mán/þri) 10-19 (mið/fim) 10-15 (föst)
Aðrar upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Glóð í netfangi glod@fylgifiskar.is
Auglýsandi
Fylgifiskar ehf
Umsóknarfrestur til
20. ágúst