Einstaklingar
Hér á www.störf.is geta einstaklingar í atvinnuleit fundið starf við sitt hæfi með einni yfirgripsmikilli leit á veraldarvefnum.
Hvergi á vefnum er hægt að finna eins margar íslenskar atvinnuauglýsingar og og á www.störf.is. Vefurinn heldur m.a. utan um atvinnuauglýsingar af vefsíðum flestra atvinnumiðlara landsins auk þess að geyma atvinnuauglýsingar af heimasíðum flestra fyrirtækja og opinberra stofnana. Með einfaldri leit í þessu safni má á fljótlegan og þægilegan hátt nálgast allar þær atvinnuauglýsingar sem eru í birtingu á vefnum og henta viðkomandi einstaklingi.
Að stofna notanda er með öllu gjaldfrjálst og fylgja því ýmsir kostir:
- Hægt er að vista ákveðin leitarskilyrði og fá upplýsingar ef ný atvinnuauglýsing sem passar við leitarskilyrðin birtist á veraldarvefnum.
- Hægt er að vista skoðaðar atvinnuauglýsingar og nálgast þær aftur á þægilegan máta síðar.
- Hægt er að rekja leitarsögu sína á vefnum aftur í tímann og þannig týnist aldrei neitt sem hefur verið skoðað.

