Hvalasýningin, Whales of Iceland, leitar að jákvæðum, orkumiklum og drífandi einstaklingi sem hefur áhuga á mannlegum samskiptum og er með gott vald á enskri og íslenskri tungu.
Starfssvið:
- Miðasala
- Bókun í ferðir
- Afgreiðsla í gjafavöruverslun og á kaffihúsi
- Önnur tilfallandi verkefni
Hvalasýning er nýtt fyrirtæki í ferðaþjónustu sem er að opna einstaka starfssemi á heimsvísu og hefur hug á að ráða til sín einstakling sem hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingunni. Sýningin er innandyra, verður staðsett við Fiskislóð í Reykjavík og verður opin allt árið.
Aðrar upplýsingar
Viðkomandi þarf að hefja störf í kringum miðjan febrúar.
Áhugasamir sendi ferilskrá á info@whalesoficeland.is fyrir 28. janúar. Nánari upplýsingar um Whales of Iceland eru á heimasíðu fyrirtækisins, whalesoficeland.is
Umsóknarfrestur til
1. febrúar