Viðhaldsþjónusta OR Veitna óskar eftir úrræðagóðum vélstjóra eða vélfræðingi til starfa við vatns- og hitaveitu fyrirtækisins á Suðurlandi með starfsstöð í Hveragerði.
OR Veitur annast rekstur og uppbyggingu veitukerfa rafmagns, heits vatns, neysluvatns og fráveitu. Meginstarfsemi fyrirtækisins er á höfuðborgarsvæðinu en veitusvæðið nær einnig til sveitarfélaga bæði á Suður- og Vesturlandi.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Rekstur, eftirlit og viðhald á vélbúnaði í dælustöðvum, borholum og dreifikerfum
- Uppsetning og ástandsgreining vélbúnaðar
- Viðgerðir á lagnakerfum
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Vélstjóri eða vélfræðingur með sveinspróf
- Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í samskiptum
- Metnaður, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
- Búseta á veitusvæði OR á Suðurlandi er skilyrði
Aðrar upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Ernstsdóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@or.is.
Auglýsandi
Orkuveit Reykjavíkur
Umsóknarfrestur til
10. maí