Fjármálasvið Orkuveitu Reykjavíkur leitar að forstöðumanni sem tilheyrir stjórnendateymi sviðsins og ber ábyrgð á áhættustýringu Orkuveitusamstæðunnar ásamt mótun stefnu og framtíðarsýnar.Viðkomandi þarf að búa yfir mjög góðri samskiptahæfni og þjónustulund ásamt sjálfstæði, frumkvæði og öguðum vinnubrögðum.
Starfs- og ábyrgðarsvið:
- Dagleg stýring einingarinnar
- Umsjón greiningar og mats á fjármála- og rekstraráhættu
- Umsjón áhættuvarna
- Skilgreining ákvarðanatökuferla
- Gerð varnarsamninga
- Álagsprófanir í rekstri
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Háskólapróf s.s. á sviði viðskipta- eða verkfræði er skilyrði
- Framhaldsmenntun á háskólastigi er kostur
- Stjórnunarreynsla er kostur
- Reynsla af áhættustýringu er skilyrði
- Mjög gott vald á íslensku og ensku
Við hvetjum bæði karla og konur til að sækja um starfið
Aðrar upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Bryndís Ernstsdóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@or.is.
Auglýsandi
Orkuveita Reykjavíkur
Umsóknarfrestur til
25. maí