× Þessi auglýsing er útrunnin

Verkefnastjóri á skrifstofu viðskiptadeildar

Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík leitar að kraftmiklum einstaklingi í fjölbreytt og krefjandi starf verkefnastjóra BSc-náms í viðskiptafræði. Starfið felst fyrst og fremst í samskiptum og þjónustu við nemendur og kennara námsbrautarinnar.

 

STARFSSVIÐ:

  • Þjónusta og samskipti við nemendur og kennara.
  • Umsjón með ýmis konar gagnaöflun og samantekt tölulegra upplýsinga.
  • Utanumhald umsókna, forsetalista, bókalista og skráningu námskeiða.
  • Aðstoð við kynningu á náminu, t.a.m. með þátttöku í nýnemadögum, Háskóladeginum og umsjón með vef viðskiptadeildar.Í boði er spennandi starf í metnaðarfullu og lifandi háskólaumhverfi. Starfið  veitir ýmis tækifæri til að sýna frumkvæði með það að markmiði að skapa framúrskarandi náms- og vinnuumhverfi fyrir nemendur.

HÆFNISKRÖFUR:

  • Háskólapróf, gjarnan í viðskiptafræði.
  • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum.
  • Mikil skipulagshæfni.
  • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi.
  • Fagmennska og vilji til að veita frábæra þjónustu.
  • Mjög góð enskukunnátta er skilyrði.

Aðrar upplýsingar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Ragna Hreinsdóttir (gudrunragna@ru.is), skrifstofustjóri viðskiptadeildar og Sigríður Elín Guðlaugsdóttir (sigridureg@ru.is) mannauðsstjóri  Háskólans í Reykjavík.  Umsóknum skal skilað á vef  Háskólans í Reykjavík hér að neðan, fyrir 31. maí 2015. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, ny´sköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3700 í fjórum deildum og starfa um 240 fastir starfsmenn við háskólann, auk fjölda stundakennara.

Auglýsandi

Háskólinn í Reykjavík

Umsóknarfrestur til

31. maí

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

verkefnastjóri, verkefnastjórnun

Landsvæði

Flokkar