Grunnskólinn í Borgarnesi auglýsir lausa fulla stöðu deildarstjóra frá 1. ágúst 2015 um er að ræða fullt starf. Skólinn er heildstæður grunnskóli með um 300 nemendur í 1.–10. bekk.
Mikil þróun á sér stað innan skólans og einstakt tækifæri fólgið í því að vera hluti af þeirri sterku heild sem kennarar og starfsfólk skólans mynda.
Óskað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í virku og skapandi skólastarfi og stýra faglegri þróun náms og kennslu í sterku teymi stjórnenda.
Menntun, reynsla og hæfni:
- Kennsluréttindi í grunnskóla og kennslureynsla.
- Meistarapróf eða framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg.
- Góð þekking á náms- og kennsluaðferðum og hæfni til að miðla þeim.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af mannaforráðum og verkefnastjórnun.
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar.
Umsóknarfrestur er til 10. júlí
Umsóknir skal senda til Signýjar Óskarsdóttur skólastjóra, signy@grunnborg.is einnig er hægt að fá nánari upplýsingar hjá henni í síma 698-9772
Auglýsandi
Grunnskólinn í Borgarnesi
Tekið við umsóknum á
Stikkorð
Fagleg stjórnun
Þróunarvinna
Menntun
Stjórnun
Samvinna