Hjúkrunarheimilið Sundabúð óskar eftir að ráða hjúkrunardeildarstjóra til afleysinga í eitt ár. Um er að ræða 80- 100 % stöðu sem veitist frá 1.sept eða eftir samkomulagi.
Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni og ber ábyrgð á að starfað sé samkvæmt markmiðum heimilisins og lögum og reglugerðum og tekur virkan þátt í breytingar- og þróunarstarfi sem fer fram á deildinni.
Hjúkrunarheimilið Sundabúð er með 11 hjúkrunarými, eitt sjúkra og endurhæfingarrýmii og eitt dagvistarrými. Samkvæmt samningi við Velferðarráðnuneytið er heimahjúkrun í sveitarfélaginu sinnt af starfsfólki hjúkrunardeildarinnar. Félagslegri heimaþjónustu er einnig stjórnað frá deildinni og er unnið að því að samþætta þessa þjónustu.
Umsækjandi skal hafa fullgilt íslenskt hjúkrunarleyfi , lögð er áhersla á samviskusemi og góða samskiptahæfileika.
Aðrar upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Aðstoð er veitt við útvegun húsnæðis.
Nánari upplýsingar veitir Emma Tryggvadóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 860 6815 og emma@vopnafjardarhreppur.is
Umsóknarfrestur er til 15.júlí næstkomandi