× Þessi auglýsing er útrunnin

Sölufulltrúar óskast til starfa á kvöldvaktir!

Öflun ehf. leitar eftir öflugum og metnaðarfullum sölufulltrúum sem fyrst til starfa á kvöldvaktir.

Vinnutími er frá kl. 17:00-21:45 virka daga.

Starf á kvöldvöktum hentar sérstaklega vel þeim sem vilja vinna með námi og er vaktafyrirkomulag sveigjanlegt, en æskilegt er að starfsmenn vinni a.m.k. 2 vaktir í viku.

Um er að ræða vinnu við úthringingar og sölu fyrir félagasamtök og fyrirtæki.

Starfsmenn okkar eru á breiðu aldursbili og hvetjum við því jafnt yngri sem eldri til að sækja um. Lágmarksaldur er þó 22 ár.

Í boði eru góð laun fyrir duglegt fólk, fjölbreytt verkefni og vinnuaðstaða eins og hún gerist best.

Hæfniskröfur: Umsækjendur þurfa að vera jákvæðir, góðir í mannlegum samskiptum, vandvirkir og búa yfir mjög góðri íslenskukunnáttu. Reynsla af sölumennsku er kostur en ekki nauðsynleg.

Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á oflun@oflun.is

Upplýsingar í síma 530 0800.

Auglýsandi

Öflun ehf.

Umsóknarfrestur til

22. febrúar

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

sölufulltrúi; sölumaður; sölufulltrúi; afgreiðsla; þjónustufulltrúi; þjónusta;

Landsvæði

Flokkar