× Þessi auglýsing er útrunnin

Umsjón jarðhitasýningar ON í Hellisheiðarvirkjun

Ertu ON?

Orka náttúrunnar leitar að kraftmiklum einstaklingi í nýtt starf umsjónarmanns jarðhitasýningar ON, sem staðsett er á Hellisheiði.Viðkomandi mun tilheyra markaðs- og kynningarsviði fyrirtækisins og bera ábyrgð á daglegum rekstri jarðhitasýningarinnar. Við leitumað öflugum einstaklingi með ríka þjónustulund og samskiptahæfni og brennandi áhuga á kynningarmálum. Starfi ð er áhugavert þar semframundan er frekari uppbygging á jarðhitasýningunni á Hellisheiði og samþætting hennar við uppbyggingu vörumerkis ON.

 

Starfs- og ábyrgðarsvið:

  • Ábyrgð á daglegum rekstri jarðhitasýningarinnar á Hellisheiði
  • Að leiða og styðja öfl ugan hóp starfsmanna
  • Umsjón með þjónustu við almenning og ferðaþjónustuaðila
  • Samskipti við innlenda og erlenda gesti
  • Þátttaka í skipulagningu og framþróun jarðhitasýningarinnar

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku
  • Reynsla af stjórnun kostur
  • Þekking á jarðvarma og nýtingu hans kostur
  • Reynsla af markaðs- og kynningarmálum kostur
  • Önnur tungumálakunnátta er kostur

Aðrar upplýsingar

Við hvetjum jafnt konur og karla til að sækja um starfið

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið rökstudd. Nánari upplýsingar um starfið veitir Bryndís Ernstsdóttir, mannauðssérfræðingur gegnum netfangið starf@on.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Orka náttúrunnar er annað stærsta orkufyrirtæki landsins. Fyrirtækið byggir á mikilli þekkingu og reynslu í orkuvinnslu. Leiðarljós okkar er að bjóða rafmagn á samkeppnishæfu verði til allra landsmanna. Hjá ON er jákvæður starfsandi sem einkennist af sterkri liðsheild, uppbyggilegum skoðanaskiptum og virðingu í samskiptum.

Auglýsandi

Orka náttúrunnar

Umsóknarfrestur til

13. september

Tekið við umsóknum á

Flokkar