Helgarstarfsmenn - vinna aðrahvora helgi.
Erum að manna vaktirnar fyrir veturinn og vantar ábyggilegan starfsmann til að vinna aðrahvora helgi. Góð laun eru í boði fyrir réttan aðila.
Umsækjandi þarf að vera eldri en 20 ára, vera fljót/ur að læra, vera skemmtileg/ur, vera með góða samskipta- og skipulagshæfileika og geta leyst hin ýmsu tilfallandi verkefni innan fyrirtækisins með bros á vör. Ef þú hefur áhuga á að vinna með okkur þá endilega sendu okkur umsókn ásamt ferilskrá á steingerdur@localsalad.is Við hlökkum til að heyra frá þér
Aðrar upplýsingar
Local var stofnað árið 2013 og opnaði fyrsti Local staðurinn í október sama ár í Borgartúni 25 í Reykjavík. Local rekur í dag tvo staði, í Borgartúni 25 og Smáralind.Markmið Local er að bjóða hollan og ferskan skyndibita á sanngjörnu verði.