IceCom ehf er fyrirtæki sem starfar m.a. í tölvu, net, raf, sjónvarps, öryggis og fjarskiptakerfum, ásamt því að þjóna fyrirtækjum og stofnunum með allskonar merkinga og öryggisvörur fyrir iðnaðinn.
Fyrirtækið er innflutnings- og þjónustuaðili búnaðar frá ýmsum aðilum á þessum sviðum.
Starf sölumanns felst í sölu á þeim vörum, búnaði og kerfum sem fyrirtækið selur og sinnir, þjónusta á skrifstofutíma við viðskiptavini, lagerumhald ofl.
Hjá IceCom starfa tæknimenn með sérhæfa þekkingu á ýmsum búnaði og verkefni starfsmanna unnin í samvinnu.
Við leitum að aðila sem hefur áhuga á að bæta við þekkingu sína, starfa sjálfstætt og með öðrum eftir aðstæðum hverju sinni.
Aðrar upplýsingar
Við leitum að samviskusömum og heiðarlegum liðsmanni í okkar hóp.
Við bjóðum starfsmönnum okkar góða vinnuaðstöðu, skemmtileg verkefni og góð laun fyrir réttan aðila.