× Þessi auglýsing er útrunnin

Við leitum að drífandi ræstingastjóra

Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir metnaðarfullan aðila hjá einni elstu og reyndustu ræstingaþjónustu landsins. Starfstöð ræstingastjóra er í Kópavogi.

Helstu verkefni:

  • - Umsjón og stjórnun ræstingaverkefna í samstarfi við þjónustuteymi
  • - Gæði þjónustu í ræstingarverkefnum
  • - Stjórnun starfsmanna í ræstingum
  • - Verkleg kennsla í ræstingum
  • - Hvatning starfsmanna
  • - Utanumhald með launavinnslu
  • - Önnur tilfallandi störf

 

Hæfniskröfur:

  • - Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • - Reynsla af mannaforráðum og stjórnun æskileg
  • - Nákvæm vinnubrögð
  • - Góð skipulagshæfni og geta til að vinna sjálfstætt
  • - Drifkraftur og frumkvæði í starfi
  • - Reynsla af ræstingum kostur
  • - Hreint sakavottorð
  • - Ökuréttindi
  • - Íslenska og enska skilyrði
  • - Pólska kostur

 

Hreint ehf, sem er íslenskt hlutafélag, var stofnað 12. desember 1983 og er ein elsta og stærsta ræstingaþjónusta landsins. Starfsemi fyrirtækisins hefur alla tíð snúist um að þjóna fyrirtækjum og stofnunum með reglulegum ræstingum og tengdri þjónustu.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsókn á gudbjorg@hreint.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Nánari upplýsingar veita Guðbjörg Erlendsdóttir (gudbjorg@hreint.is) starfsmannastjóri Hreint ehf.

 

Auglýsandi

Hreint ehf

Umsóknarfrestur til

30. september

Tekið við umsóknum á

Flokkar