× Þessi auglýsing er útrunnin

Ljósmyndavörur - afgreiðsla í búð

Óskum eftir starfsmanni í 100% starf í verslun okkar að Skipholti 31.

Við leitum að aðila sem hefur gaman af því að umgangast fólk og er með ríka þjónustulund.  Starfið felst í að afgreiða viðskiptavini með framköllun, stækkanir, striga.  Hjálpa fólki með val á römmum, hjálpa fólki að koma myndunum sínum af stafrænu formi yfir á pappír.  Afgreiða Fujifilm myndavélar og filmur.  Einnig þarf viðkomandi að sjá um að fylla á búðina, verðmerkja og aðstoða við framköllun osfrv.

Búðin er opin frá 09:00-18:00 virka daga og 10:00-15:00 á laugardögum.

Æskilegt að í framtíðinni geti viðkomandi tekið að sér vinnu annan hvern laugardag.  Og svo þarf viðkomandi að vera tilbúinn að vinna mikið í desember hvert ár.

Hæfniskröfur:

  • Þjónustulund
  • Stundvísi
  • Geta talað, lesið og skrifað íslensku
  • Grunnþekking á tölvum og tölvupósti
  • Reykleysi og reglusemi
  • Stundvísi

Ljósmyndavörur er eitt elsta ljósmyndafyrirtæki landsins stofnað 1974 og er enn í eigu stofnenda.

Aðrar upplýsingar

Umsóknarfrestur til 24. febrúar.  Tekið á móti umsóknum á bergur@fujifilm.is

Auglýsandi

Ljósmyndavörur ehf

Umsóknarfrestur til

24. febrúar

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

Afgreiðsla, framköllun, ljósmyndun,

Flokkar