× Þessi auglýsing er útrunnin

Ljósleiðaratæknir

Viltu komast í Gæðasamband ?

Gagnaveita Reykjavíkur leitar að öflugri manneskju til að byggja upp og viðhalda Ljósleiðaranum. Ljósleiðarinn er dreifikerfi fjarskipta fyrir heimili og fyrirtæki á Suðvesturlandi. Ljósleiðarinn veitir gæðasamband sem uppfyllir nútímakröfur.

Hvert væri þitt hlutverk?

  • Koma heimilum og fyrirtækjum í samband við Ljósleiðarann
  • Setja upp Ljósleiðaraboxið og innanhúslagnir að endabúnaði
  • Setja upp endabúnað fyrir viðskiptavini
  • Byggja upp og viðhalda kerfum Ljósleiðarans
  • Vakta og fylgjast með kerfum Ljósleiðarans
  • Setja upp kerfi í tengistöðvum Ljósleiðarans

Er starfið fyrir þig? Reynsla eða þekking á ljósleiðara, netbúnaði og netkerfum er kostur. Við leitum að jákvæðum, duglegum og samskiptaliprum einstaklingum. Starfið býður upp á frábæra vinnuaðstöðu, gott mötuneyti, skemmtilega vinnufélaga og hæfa stjórnendur.

Við erum með vel mótaða jafnréttisstefnu og tökum vel á móti konum sem körlum.

Aðrar upplýsingar

Ef þú vilt aðeins forvitnast um starfið sendu þá endilega póst á Dagnýju á netfangið dagny.johannesdottir@gagnaveita.is

Auglýsandi

Gagnaveita Reykjavíkur

Umsóknarfrestur til

22. febrúar

Tekið við umsóknum á

Flokkar