× Þessi auglýsing er útrunnin

Sölumaður fyrir Rekstrarvörur á Norðurlandi og Vestfjörðum

Rekstrarvörur óska eftir að ráða sölumann til starfa. Í boði er starf hjá rótgrónu og traustu fyrirtæki.

Starfið felur í sér heimsóknir og sölu á rekstrarvörum til fyrirtækja og stofnana,  auk ráðgjafar í hreinlætismálum og þjónustu við viðskiptavini. Starfssvæði er Norðurland og Vestfirðir.

Æskilegt er að viðkomandi þekki vel til á starfssvæðinu og hafi búsetu á Norðurlandi.

 

Viðkomandi þarf að hafa áhuga á mannlegum samskiptum og  vera með reynslu af sölustörfum, æskilegt er að viðkomandi sé handlaginn og treysti sér til að þjónusta og sinna minniháttar viðhaldi og uppsetningu á þeim búnaði sem RV selur, t.d. skömmturum og fleira.

Vinnutími  er almennt 8:00-16:00 mánudaga til föstudaga.

Leitað er að áhugasömum, ábyrgum, jákvæðum, sjálfstæðum og þjónustulunduðum aðila sem getur hafið störf fljótlega.

 

Umsjón með ráðningu hefur Sigurlaug Þóra Kristjánsdóttir fræðslu-og starfsmannastjóri RV. Allar umsóknir ásamt ferilskrá með mynd skulu sendar á sigurlaug@rv.is

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknafrestur er til 20. Maí 2016

Auglýsandi

Rekstrarvörur ehf

Umsóknarfrestur til

2. júní

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

sala akureyri

Flokkar