× Þessi auglýsing er útrunnin

Íþróttakennari óskast

Við Grunnskólann í Hveragerði er laus staða íþróttakennara fyrir næsta skólaár. Gerð er krafa um kennsluréttindi, hreint sakavottorð og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi. Einkunnarorð skólans eru: viska, virðing og vinátta og við leggjum metnað í að áhrif þeirra séu augljós í daglegu starfi. Skólinn flaggar Grænfánanum, starfar eftir hugmyndafræði Olweusaráætlunarinnar gegn einelti og er að stíga sín fyrstu skref í innleiðingu á Uppbyggingarstefnunni.

Aðrar upplýsingar

Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk.

Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og umsagnaraðila sendist Fanney Ásgeirsdóttur, skólastjóra, fanney@hveragerdi.is Skólastjóri veitir einnig frekari upplýsingar í síma 483-4350

Auglýsandi

Grunnskólinn í Hveragerði

Umsóknarfrestur til

10. júní

Tekið við umsóknum á

Flokkar