× Þessi auglýsing er útrunnin

Tollskjalagerð

TVG-Zimsen leitar að kraftmiklum og nákvæmum einstaklingi í starf þjónustufulltrúa í tollskjalagerð. Viðkomandi þarf að vera skipulagður í vinnubrögðum, hafa frumkvæði, metnað til ná árangri og veita framúrskarandi góða þjónustu.

Starfssvið:

  • Tollskýrslugerð
  • Upplýsingagjöf og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Samskipti við tollayfirvöld

Hæfniskröfur:

  • Námskeið í tollmiðlun frá Tollskóla ríkisins
  • Haldbær reynsla af tollskjalagerð
  • Talnagleggni og nákvæm vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

 

TVG-Zimsen er traust og metnaðarfullt ört stækkandi fyrirtæki. Við hjá TVG-Zimsen leggjum okkur fram um að bjóða upp á bestu mögulegu þjónustuna sem völ er á og ávallt með bros á vör. Hjá TVG-Zimsen starfa nú 45 hæfileikaríkir og skemmtilegir starfsmenn með víðtæka reynslu í flutningsbransanum.

Hjá TVG-Zimsen er reyndur fagmaður í hverri stöðu.

Fyrirspurnir varðandi starfið sendist á: starf@tvg.is

Umsóknarfrestur er til 3.júní

 

Auglýsandi

TVG-Zimsen

Umsóknarfrestur til

3. júní

Tekið við umsóknum á

Flokkar