Þróunarsvið Orkuveitu Reykjavíkur óskar eftir að ráða sérfræðing í fullt starf. Þróunarsviðið þjónar fyrirtækjum OR samstæðunnar við forðagæslu, nýsköpun og tækniþróun. Ef þú býrð yfir góðri samskiptahæfni, sveigjanleika og ert sjálfstæð(ur) í vinnubrögðum ættir þú að sækja um þetta starf.
Starfið felst í:
- Sýnatöku á veitu- og virkjanasvæðum OR samstæðunnar
- Söfnun gagna, greiningum, úrvinnslu og textaskrifum í tengslum við útgáfu umhverfisskýrslu
- Verkefnum tengdum gagnautanumhaldi og framsetningu í þrívíddar og GIS kerfum
- Vinnu í skipulagsmálum samstæðunnar
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla í gagnavinnslu og framsetningu gagna í GIS- og þrívíddarforritum er kostur
- Reynsla og þekking á orku- og veitugeiranum er kostur
- Reynsla af sýnatöku er kostur
Við bjóðum upp á krefjandi og skemmtileg verkefni, góða vinnuaðstöðu, mötuneyti og líkamsræktaraðstöðu. Við viljum vera í fremstu röð hvað snertir öryggi, starfsþróun, jafnrétti og jafnvægi á milli vinnu og einkalífs.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Ásdís Eir Símonardóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@or.is. Eingöngu er tekið á móti umsóknum á ráðningavef OR, starf.or.is. Umsóknarfrestur er til og með 8. júní 2016.