× Þessi auglýsing er útrunnin

Rafiðnaðarfólk

Vilt þú koma fólki í samband við framtíðina? 

Það er nóg að gera hjá Ljósleiðaranum. Við leitum því að rafiðnaðarfólki til starfa við að afhenda viðskiptavinum okkar Ljósleiðarann. Við leitum að jákvæðu, útsjónarsömu og samskiptalipru fólki í hóp skemmtilegra og hæfra félaga sem standa vel saman í að veita viðskiptavinum Ljósleiðarans framúrskarandi þjónustu.
 
Þú færð að koma fólki í hágæðasamband:

  • Mæta nýrri áskorun á hverjum degi
  • Velja bestu lagnaleiðir; jafnt ljósleiðara- sem smáspennulagnir
  • Virkja þjónustu s.s. nettengingar, sjónvarp og síma
  • Sinna alls kyns  öðrum spennandi verkefnum

- og skilja viðskiptavininn eftir með bros á vör!
 Það væri frábært ef þú vildir einnig hjóla með okkur í WOW Cyclothon 2017.
 
Viltu vinna með okkur?
Við bjóðum upp á frábæra vinnuaðstöðu, virka starfsþjálfun, gott mötuneyti og aðstöðu  til líkamsræktar. Við erum með vel mótaða starfsmanna- og jafnréttisstefnu og erum í fremstu röð hvað varðar öryggi, vinnuumhverfi og möguleika til að samræma vinnu og einkalíf.
 
Við útvegum starfsmönnum allt sem þarf; bíl á vinnutíma, fatnað, verkfæri, fartölvu, heimatengingu, farsíma  og spjaldtölvu. Við skipuleggjum allar þínar heimsóknir þannig að þú getur notið þess að kynna viðskiptavinum nýjustu tækni í fjarskiptamálum og koma þeim í snertingu við framtíðina.

Aðrar upplýsingar

Eingöngu er sótt um starfið á ráðningarsíðu Gagnaveitu Reykjavíkur. Nánari upplýsingar veitir Dagný Jóhannesdóttir forstöðumaður í netfanginu dagnyj@gagnaveita.is.

Kíktu á Ljósleiðarann á Facebook!

Auglýsandi

Gagnaveita Reykjavíkur

Umsóknarfrestur til

8. september

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

Rafvirki Rafeindavirki Símvirki Rafiðnaður

Flokkar