Leitum að Rekstrarstjóra
Gistiheimili á suðurlandi leitar sér að rekstrarstjóra
Ábyrgð starfsmanns eru:
- Vinna í móttöku
- Fylgjast með bókunum
- Svara tölvupóstum
- Svara í síma
- Skrifa reikninga
- Skipuleggja þrif á herbergjum og almennt
- Panta vörur fyrir hús, eldhús og herbergi
- Hafa auga fyrir heimilishaldi verð, gæði, magn, nýtni
- Geta gengið í önnur störf svo sem þrif, þvotta, morgunmat og önnur húsverk sem til falla.
Við erum að leita að áhugasömum einstaklingum til að vinna og búa á rólegum stað, mikilvægt er að viðkomandi hafi góða samskiptahæfileika og fær um að vinna með öðru fólki. Góð færni í ensku er nauðsynleg, og íslenska hjálpar.
Við erum að leita að pari og eða einstakling, með reynslu af því að vinna í ferðaþjónustu. Þetta er lítill gististaður með samtals 3-4 starfsmenn.
Launakjör eftir samkomulagi.
Gott er ef viðkomandi gæti hafið störf 1. september 2016, við leitum að aðila til framtíðar starfa.
Auglýsandi
Skeiðflöt ehf
Umsóknarfrestur til
15. september
Tekið við umsóknum á
Stikkorð
ferðaþjónusta, hótel, gistiheimili, rekstararstjóri, þrif, þjónustustörf