× Þessi auglýsing er útrunnin

Tæknimaður Grundartanga

Hamar ehf. óskar eftir tæknimanni með góða þekkingu á sviði málmiðnaðar til að styðja við rekstur starfsstöðvar Hamars á Grundartanga og þjónusta viðskiptavini Hamars á svæðinu auk þess að sinna öðrum verkefnum á tæknisviði fyrirtækisins.

Helstu verkefni tæknimanns:

  • Samskipti og þjónusta við viðskiptavini Hamars á Grundartanga
  • Heimsóknir til viðskiptavina
  • Verkefni á tæknisviði, s.s. hönnunar-, tækni- og teiknivinna
  • Tilboðsgerð, eftirlit með verkefnum og verkefnastýring
  • Uppbygging og viðhald viðskiptasambanda

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Véltæknifræði- eða verkfræðimenntun æskileg en véliðnfræði kemur einnig til greina
  • Góð reynsla og þekking á faginu nauðsynleg
  • Iðnmenntun er mikill kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Öguð vinnubrögð og gott skipulag
  • Góð þekking á MS Office (og jafnvel MS Project)
  • Góð þekking á notkun Autodesk teikni- og hönnunarforrita
  • Gott vald á ensku, bæði töluðu og rituðu máli er mikill kostur

Aðrar upplýsingar

Umsóknir óskast sendar í gegnum heimasíðu Hamars ehf, www.hamar.is þar sem valið er "Atvinna í boði" efst til hægri. Upplýsingar um starfið veitir Arnar G. Guðmundsson arnar@hamar.is sími: 660 3616

Auglýsandi

Hamar ehf

Umsóknarfrestur til

30. september

Stikkorð

Autocad, hönnun, Inventor, MS Office, teiknivinna, tæknifræðingur, tæknimaður, tækniþjónusta, véliðnfræðingur, véltæknifræðingur, verkefnastjórnun, verkfræðingur

Flokkar