× Þessi auglýsing er útrunnin

Fjölbreytt staða sem aðstoðar- og þjónustufulltrúi í 50-60% starf

Ert þú tæknivædd/ur? Áttu gott með að halda utan um verkefni og fylgja þeim eftir? Býrðu yfir góðri þekkingu á sviði heilsu?

Nýtur þú þess að þjónusta viðskiptavini og hefur þú reynslu af því að skilja viðskiptavininn eftir ánægðan? Ert þú framsækin/n, ófeimin/n og kannt vel við þig í netmarkaðssetningu? Þá erum við að leita að þér!

Starfið felur í sér um 50% hlutastarf en þó meira/minna eftir álagstímum, unnið er milli 9 og 17 alla virka daga heima frá, en einnig eru fundir í persónu innan fyrirtækis haldnir vikulega. Möguleiki er á meiri vinnu í framtíðinni og meiri vinnu á álagstímum (að meðaltali 4 sinnum yfir árið). Þó að starfsmaður þurfi að vera til taks yfir vikuna getur viðkomandi skipulagt sig sjálfur því tímarnir eru sveigjanlegir og vel hægt að komast að samkomulagi um fyrirkomulag.

Hvað munt þú gera í starfinu?

Þjónusta viðskiptavini, sem og hugsanlega viðskiptavini, í gegnum tölvupósta og fyrirtækjasíma sem þú berð ábyrgð á.
Anna fyrirspurnum kúnna í gegnum facebook grúppu og facebook like-síðu fyrirtækisins.
Hvetja kúnna áfram og fá árangurssögur frá kúnnum í þjálfun.
Hafa umsjón með póststýrikerfum og daglegum rekstri fyrirtækisins.
Eiga samskipti við forritara og hönnuði.
Lesa yfir gögn og leiðrétta villur.
Aðstoða við námskeið, skipulag og utanumhald.
Ýmis tilfallandi verkefni ritara og aðstoðarkonu/manns.
Umsjón með youtube stöð og fleiri netþjónamiðlum.
Taka þátt í fundum og koma með tillögur að vexti og betrumbótum fyrirtækisins.

Aðrar upplýsingar

Auglýsandi

Lifðu til Fulls

Umsóknarfrestur til

7. október

Stikkorð

heilsa Fjölmiðlatengsl Prófarkalestur Hlutastarf Verkefnastýring

Flokkar