× Þessi auglýsing er útrunnin

TÆKNIMAÐUR Í VERKEFNASTJÓRNUN

THG arkitektar ehf. óska eftir að ráða tæknimann til starfa við verkefnastjórnun og fjölbreytta ráðgjafavinnu. Hjá THG arkitektum starfa nú 27 arkitektar og ráðgjafar á sviði arkitektúrs og verkefnastjórnunar. Verkefni fyrirtækisins eru fjölbreytt hönnunar- og ráðgjafastörf fyrir einstaklinga, fasteignafélög, sjálfseignarstofnanir og opinbera aðila.

Helstu verkefni tæknimanns

  • Verkefnastjórn framkvæmda
  • Eftirlit með framkvæmdum
  • Gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana
  • Verklýsingar og útboðsgögn
  • Tilfallandi hönnunarvinna séruppdrátta
  • Ýmiskonar önnur ráðgjöf við viðskiptavini

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Byggingaverkfræði, byggingatæknifræði eða byggingafræðimenntun
  • Iðnmenntun er kostur
  • Viðkomandi þarf að hafa nokkurra ára starfsreynslu á ofangreindu sviði.

 

Æskilegt er að umsækjendur séu hugmyndaríkir, hafi frumkvæði og metnað til að takast á við  krefjandi verkefni, einir eða í samvinnu við aðra. Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á öllum helstu forritum sem notuð eru við verkefnastjórnun og hönnun.

 

Umsóknum fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum.

Umsóknir verður farið með sem trúnaðarmál. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar

Öllum fyrirspurnum verður svarað.

Vinsamlegast sendið umsóknir til ella@thg.is fyrir 5.janúar 2018

 

Auglýsandi

THG Arkitektar ehf.

Umsóknarfrestur til

5. janúar

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

Byggingafræðingur Byggingatæknifræðingur Verkfræðingur Verkumsjón Verkefnastjórnun

Flokkar