Orka náttúrunnar óskar eftir að ráða öflugan verkefnisstjóra til að stýra og hafa eftirlit með þeim jarðhitaborunum sem framundan eru á Hengilssvæðinu. Við leitum að sannkölluðum orkubolta: Reynslumikilli og jákvæðri manneskju til að takast á við fjölbreyttar og krefjandi áskoranir.
Starfssvið:
• Ábyrgð á undirbúningi og framkvæmd jarðhitaborana
• Sérfræðieftirlit á verkstað meðan á borun stendur
• Umsjón með öflun aðfanga til borunar á vinnslu- og niðurdælingarholum
• Eftirfylgd með öryggis- og umhverfiskröfum ON
• Aðkoma að framþróun verklags við verkefnisstjórnun og sérfræðieftirlit
Hæfniskröfur:
• Reynsla af jarðhitaborunum er nauðsynleg
• Reynsla af verkefnastjórnun æskileg
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Yfirsýn og skipulagsfærni
• Frumkvæði og drifkraftur
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Aðrar upplýsingar
Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2016. Umsóknum skal skilað á ráðningarvef ON, starf.on.is. Nánari upplýsingar veitir Ásdís Eir Símonardóttir, mannauðssérfræðingur - starf@on.is.
Við hvetjum jafnt konur og karla til að sækja um starfið.
Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til allra landsmanna á samkeppnishæfu verði. Við viljum nýta auðlindir af ábyrgð og nærgætni og bæta lífsgæðin í nútíð og framtíð.