Byggðatækni - hönnun
Starf á sviði byggðatækni felst í hönnun gatna og veitukerfa. Starfsreynsla er nauðsynleg og þekking á Civil 3D er kostur.
Frekari upplýsingar gefur Úlfar Kristinsson.
Rafkerfi - hönnun
Starf við hönnun rafkerfa snýr mest að almennum raflögnum og lýsingarkerfum við mannvirkjagerð. Starfsreynsla er nauðsynleg og reynsla af notkun MaciCAD er kostur.
Stefnt er á að fagstjórn sviðsins heyri einnig undir nýjan starfsmann. Fagstjóri leiðir þróun sviðsins og þjónustuframboðs.
Frekari upplýsingar gefur Örn Guðmundsson.
Auglýsandi
VSB verkfræðistofa ehf.
Umsóknarfrestur til
6. mars