× Þessi auglýsing er útrunnin

Sumarstarf í verslun RV

Rekstrarvörur leitar eftir að ráða sumarstarfsmann í söluteymi sitt í  verslun sína að Réttarhálsi 2.

Rekstrarvörur sérhæfa sig í sölu-og dreifingu á hreinlætivörum, hjúkrunar- og rekstrarvörum.

Í starfinu felst sala, afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini, áfyllingar á hillur og annað sem tilheyrir starfinu.

Verslunin er opin alla virka daga frá klukkan 8:00-18:00, unnið er á 9klst vöktum mánudaga-fimmtudaga og 8klst á föstudögum.

Auk þess er verslunin opin á laugardögum kl 10:00-16:00, æskilegt er að starfsmaður að geti unnið annan hvern laugardag.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi
  • Stundvísi
  • Góð þjónustulund
  • Íslenskukunnátta
  • Reynsla af sölustörfum kostur
  • Reyklaus og hreint sakavottorð

Vinsamlegast merkið umsókn Verslunsumar2017

Umsóknir sendist á sigurlaug@rv.is Umsjón með ráðningu hefur Sigurlaug Þóra Kristjánsdóttir, Fræðslu-og starfsmannastjóra RV, farið er fram á ferilskrá með mynd.

Umsóknafrestur rennur út  24.mars 2017.

Haft verður samband við umsækjendur eftir þann tíma.

 

 

Auglýsandi

Rekstrarvörur ehf

Umsóknarfrestur til

12. mars

Tekið við umsóknum á

Flokkar