× Þessi auglýsing er útrunnin

Umsjónarkennari

Við auglýsum eftir að ráða frá 1. maí 2017(helst) eða frá og með næsta skólaári (1. ágúst 2017):
Umsjónarkennara í fullt framtíðarstarf sem getur tekið að sér kennslu á öllum stigum og flestar námsgreinar (nema sund).

Menntun, reynsla og metnaður:

  • Grunnskólakennari með leyfisbréf til kennslu
  • Vinna eftir fjölbreyttum kennsluaðferður, t.d. útikennslu, byrjendalæsi og samþættingu námsgreina
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áhugi á að vinna að uppbyggingu skóla og skólasamfélags
  • Starfið hentar konum og körlum

Ljósrit af leyfisbréfi eða prófgráðum eða staðfesting á námi skal fylgja umsókn ásamt sakavottorði.

Grunnskólinn á Borgarfirði eystra er heildstæður grunn- og leikskóli þar sem litið er á nám nemdenda frá leikskóla til grunnskóla sem eina heild. Í öllu skólastarfinu er rými fyrir fjölbreytta kennsluhætti og samþættingu námsgreina samhliða metnaði fyrir bóklegum greinum. Skapandi störf nemenda, sjálfbærni og góð tengsl við grenndarsamfélagið, sögu þess og menningu eru hluti af daglegu skipulagi námsins, ásamt útikennslu.  Skipulag náms, kennsluhættir og námsmat er fjölbreytt og miðar að virku nemendalýðræði. Nám barnanna á öllum stigum tekur mið af þessum einkennum og er einstaklingsmiðað. 

Skólinn okkar er í stöðugri þróun og mótun en þróunarverkefni næstu ára fela í sér að  efla fjölbreytta kennsluhætti, auka nemendalýðræði, vinna markvisst að samvinnu heimila og skóla og auka á val og þemanám með það að markmiði að gera nemendur ábyrga námsmenn og manneskjur sem aðhyllast heilbrigt líferni í nútímasamfélagi.

Einkennisorð skólans og yfirmarkmið alls þess sem við tökum okkur fyrir hendur eru gleði,  árangur og virðing. Sjá nánar á vefsíðu:

http://www.borgarfjordureystri.is/grunnskolinn

Auglýsandi

Grunnskoli Borgarfjarðar eystra

Umsóknarfrestur til

12. apríl

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

Kennari

Landsvæði

Flokkar