× Þessi auglýsing er útrunnin

Rafvirki

 VILTU KOMA FÓLKI Í SAMBAND VIÐ FRAMTÍÐINA?

Við leitum að jákvæðum, handlögnum og samskiptaliprum rafvirkjum í ört vaxandi hóp skemmtilegra vinnufélaga sem hjálpast að við að leggja Ljósleiðarann inn í heimahús á höfuðborgarsvæðinu, Vestur- og Suðurlandi.

 Þú heimsækir fólk á hverjum degi:

  • tekur þátt í gefandi samskiptum við þakkláta viðskiptavini
  • finnur bestu lagnaleiðir og tengir ljósleiðarabox
  • virkjar þjónustu heimila: net, sjónvarp og síma
  • og lýkur hverri heimsókn með bros á vör – án pappírsvinnu!

Til að sinna starfinu vel þarftu að hafa menntun í rafiðnaði. Starfið hentar jafnt konum sem körlum.

Aðrar upplýsingar

Við bjóðum þér góð laun, stöðugan vinnustað, reglulegan vinnutíma og góða starfsþjálfun fyrir fjölbreytt starf. Einnig bjóðum við stuðning við þá sem vilja ljúka sveinsprófi í rafvirkjun.

Við höfum frábæra vinnuaðstöðu, gott mötuneyti og aðstöðu til líkamsræktar. Við útvegum starfsmönnum allt sem þarf: bíl á vinnutíma, fatnað, verkfæri, fartölvu, heimatengingu, farsíma og spjaldtölvu. Við skipuleggjum allar þínar heimsóknir þannig að þú getur notið þess að heimsækja viðskiptavini og aðstoðað þá við að komast á Ljósleiðarann.

Auglýsandi

Gagnaveita Reykjavíkur

Umsóknarfrestur til

3. maí

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar