ERT ÞÚ IÐNAÐARMAÐUR FRAMTÍÐARINNAR?
Við leitum að starfsmanni til að vinna við grunnkerfi ljósleiðarans í tengistöðvum og dreifikerfi. Við leitum að jákvæðum, útsjónarsömum og samskiptaliprum félaga í Ljósleiðaradeild okkar sem í sameiningu annast uppbyggingu, viðhald og rekstur á ljósleiðarakerfi okkar.
Þú kemur á og viðheldur hágæðasambandi:
Starfið felst í viðhaldi og rekstri grunnkerfis Ljósleiðarans með því að:
- tengja og virkja kerfis- og fyrirtækjasambönd
- gæðamæla ljósleiðarasambönd
- byggja upp og viðhalda grunnkerfi ljósleiðarans
- setja upp og viðhalda tæknibúnaði í tengistöðvum
- hafa eftirlit á ljósleiðarakerfinu
Vilt þú auka lífsgæði og stuðla að tækniþróun?
Til að sinna starfinu vel þarftu að hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi s.s. raf-, rafeinda- eða símvirkjun. Reynsla eða þekking á ljósleiðaratækni er kostur en ekki nauðsyn. Í starfinu færðu tækifæri til að læra allt um grunnkerfi ljósleiðarans og tæknina sem því fylgir. Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Auglýsandi
Gagnaveita Reykjavíkur
Umsóknarfrestur til
30. apríl