Bandalag íslenskra skáta óskar eftir því að ráða framkvæmdastjóra Grænna skáta.
Um framtíðarstarf er að ræða.
Tilgangur starfs
- Afla fjár fyrir Bandalag íslenskra skáta.
- Rekstur Grænna skáta ehf. og Skátabúðarinnar ehf.
- Stjórna starfseminni og vera málsvari fyrirtækisins út á við.
- Sinna öðrum fjáröflunar- og samfélagsverkefnum skátahreyfingarinnar.
Ábyrgðar- og stjórnunarsvið
- Daglegur rekstur beggja eininga.
- Dagleg umsýsla, áætlanagerð, markaðs- og kynningarmál, fjármál og starfsmannahald.
- Samskipti við birgja, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi.
- Stjórnunarreynsla er skilyrði.
- Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, eiga auðvelt með samskipti og sýna frumkvæði í starfi.
- Leitað er að einstaklingi sem getur tekið þátt í almennum störfum fyrirtækisins ef á þarf að halda.
- Leitað er eftir einstaklingi sem getur stýrt og unnið með einstaklingum með skerta starfsgetu.
Aðrar upplýsingar
Umsóknarfrestur er til 26. maí. Umsóknum skal skilað til framkvæmdastjóra Bandalags íslenskra skáta á netfangið: hermann@skatar.is. Nánar upplýsingar veitir Hermann í síma 550-9800.
www.dosir.is
Auglýsandi
Bandalag íslenskra skáta
Umsóknarfrestur til
26. maí