× Þessi auglýsing er útrunnin

Leikskólakennari, önnur menntun eða reynsla

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólann Sjáland í Garðabæ. Við leitum að leikskólakennurum, starfsfólki með aðra uppeldismenntun eða starfsfólki með reynslu af starfi með börnum.


Leikskólinn Sjáland er sjálfstætt starfandi leikskóli sem vinnur eftir Fjölvísistefnunni. Skólinn er staðsettur við ströndina í Sjálandshverfinu í Garðabæ í nýlegu og rúmgóðu húsnæði. Við leggjum áherslu á einstaklingsmiðað nám með því að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir.


Við leitum að fólki sem sýnir sjálfstæði, frumkvæði og jákvæðni í starfi og metum mikils áhuga og metnað starfsmanna okkar.

Aðrar upplýsingar


Áhugasamir sendi ferilskrá á netfangið ingibjorg@sjaland.is. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Ósk mannauðsstjóri í sama netfangi, eða í síma 578-1220.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um.

www.sjaland.is

Auglýsandi

Leikskólinn Sjáland

Umsóknarfrestur til

26. september

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

Kennari, leikskólakennari, leikskóli, kennsla

Landsvæði

Flokkar