× Þessi auglýsing er útrunnin

Yfirmaður tæknideildar Stykkishólmsbæjar

Stykkishólmsbær auglýsir lausa til umsóknar stöðu yfirmanns tæknideildar Stykkishólmsbæjar sem jafnframt er   byggingar- og skipulagsfulltrúi. Undir tæknideild fellur rekstur áhaldahúss, rekstur fasteigna Stykkishólmsbæjar og mannvirkja Stykkishólmshafnar. Um er að ræða mjög spennandi starf í áhugaverðu samfélagi. Leitað er eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa starfið á traustum grunni..  Byggingarfulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa. Ráðið verður í starfið frá og með 1.september n.k. eða eftir nánara samkomulagi Um er að ræða 100% starf og er umsóknarfrestur til og með 12. ágúst nk.

Samkvæmt auglýsingunni er starfssvið byggingarfulltrúa eftirfarandi:

  • Framkvæmd skipulags- og byggingarmála.
  • Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar.
  • Undirbúningur- og eftirfylgni funda skipulags- og byggingarefndar.
  • Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar, sem sinna verkefnum á sviði byggingarmála.
  • Umsjón framkvæmda og eignaumsýslu í sveitarfélaginu.
  • Önnur verkefni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi menntun og löggildingu samkvæmt ákvæðum 8. og 25.grein mannvirkjalaga nr.160/2010 og uppfylli kröfur 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
  • Reynsla af stjórnun verklegra framkvæmda mikilvæg..
  • Þekking og reynsla af úttektum og mælingum.
  • Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingarreglugerð.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
  • Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
  • Góð almenn tölvukunnátta.

Umsókn á að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum stéttarfélaga við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn á netfangið sturla@stykkisholmur.is eigi síðar en 12. ágúst nk. Umsókninni þarf að fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf þar sem umsækjandi gerir sérstaklega grein fyrir hæfni til starfans út frá ofangreindum hæfnikröfum. Umsækjendur eru beðnir um að tilgreina a.m.k. tvo umsagnaraðila í umsókn sinni. Nánari upplýsingar veitir Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri Stykkishólmi í síma 433-8100/863-8888  eða tölvupósti: sturla@stykkisholmur.is.

 

Stykkishólmi, 7. júlí 2017

Sturla Böðvarsson

Auglýsandi

Stykkishólmsbær

Umsóknarfrestur til

12. ágúst

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

Skipulags- og byggingafulltrúi tæknideild

Landsvæði

Flokkar