× Þessi auglýsing er útrunnin

Framtíðarstörf

Við leitum að fólki í framtíðarstörf.

Hefur þú áhuga á þjóninum í fullu starfi eða hlutastarfi (kvöldvaktir) , aðstoð í eldhúsi við morgunverð í 50% starfi eða í 100% starfi í gestamóttöku?

Við leitum að einstaklingum sem hafa gaman af lífinu og eru jákvæðir. Ef þú ert það og sjálfstæð(ur) í vinnubrögðum, átt gott með að vinna í hópi sem og ein(n) þá gætir þú verið okkar manneskja.

Þú þarft að getað tjáð þig munnlega og skriflega á ensku.

Northern Light Inn er 42 herbergja hótel með veitingastaðinn Max's Restaurant sem tekur allt að 150 manns í sæti. Við erum staðsett 1 km frá Bláa Lóninu.

Nánari upplýsingar um hótelið er að finna á heimasíðu okkar www.nli.is 

Ef þér líst vel á okkur þá endilega hafðu samband. Hver veit nema að okkur lítist vel á þig og úr verður gott langtímasamband.

Aðrar upplýsingar

Northern Light Inn er fjölskyldufyrirtæki og hefur verið opið frá árinu 1983. Hjá okkur starfa um 42 manns og við leggjum hart að okkur að þjónusta viðskiptavini okkar og hafa gaman í vinnunni.

Auglýsandi

Northern Light Inn

Umsóknarfrestur til

27. ágúst

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar