Okkur finnst fjársjóður liggja í fjölbreytileikanum og í Austurkór er starfsfólk með alls konar menntun, reynslu og áhugasvið.
Nú þurfum við fleiri liðsmenn í okkar faglega, metnaðarfulla og samheldna starfsmannahóp. Hinar ýmsu kennara- og stjórnunarstöður eru í boði: deildarstjórastaða, aðstoðarleikskólastjóra, leikskólasérkennarastaða, leikskólakennarastöður.
Einnig óskum við eftir starfskröftum þroskaþjálfa og/eða iðjuþjálfa.
Hornsteinar skólastarfsins í Austurkór eru: útinám, námslotur byggðar á gildum skólans og lýðræðisleg vinnubrögð. Gildi skólans eru: Samvinna, Lýðræði, Atorka og einkunnarorð skólans eru: „Austurkór...þar sem ævintýrin gerast“
Aðrar upplýsingar
Upplýsingar um skólann og starfsemi hans er hægt að nálgast á heimasíðunni austurkor.kopavogur.is og á facebook síðu skólans https://www.facebook.com/austurkor/
Sótt er um störfin á heimasíðu Kópavogs https://www.kopavogur.is og er umsóknarfrestur til og með 05.09.201