Við leitum eftir starfsmanni í stöðu innkaupafulltrúa. Um nýtt starf er að ræða og fær viðkomandi að taka þátt í að móta það sjálfur. Vinnutími er í dagvinnu, 8-16 eða 9-17.
Airport Associates er sjálfstætt starfandi flugafgreiðslufyrirtæki með höfuðstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Starfsemin felur í sér alla alhliða þjónustu við flugfélög, allt frá hleðslu / afhleðslu farms, innritun farþega, hleðslu eftirlit, fraktafgreiðslu og ræstingu.
Helstu verkefni:
- Innkaup á rekstrarvörum fyrirtækisins
- Eftirfylgni með beiðnaferlum
- Móttaka á vörum og samþykkt reikninga
- Birgða og eignaskráning
- Útdeiling á ýmsum rekstrarvörum
Menntunar og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla úr sambærilegu starfi
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Reynsla af Navision bókhaldskerfi kostur
Umsóknarfrestur er til 24. September 2017 áhugasamir sækið um á heimasíðu fyrirtækisins, www.airportassociates.com
Nánari upplýsingar gefur Þórhalla Pálsdóttir Fjármálastjóri, tp@airportassociates.com.
Auglýsandi
Airport Associates
Umsóknarfrestur til
24. september