× Þessi auglýsing er útrunnin

Matreiðslumaður

Airport Associates leitar eftir menntuðum matreiðslumanni til að sjá um rekstur nýs mötuneytis í nýju og glæsilegu húsnæði fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli. Viðkomandi mun taka þátt í að móta og skipuleggja daglega starfsemi mötuneytisins.

Airport Associates er sjálfstætt starfandi flugafgreiðslufyrirtæki með höfuðstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Starfsemin  felur í sér alla alhliða þjónustu við flugfélög, allt frá hleðslu / afhleðslu farms, innritun farþega, hleðslu eftirlit, fraktafgreiðslu og ræstingu. Starfsmannafjöldi fyrirtækisins er rétt um 600 manns sem vinna að stórum hluta á vöktum.

 

Umsóknarfrestur er til 24. september 2017. Áhugasamir sækið um á heimasíðu okkar, www.airportassociates.com

 Nánari upplýsingar gefur Þórey Jónsdóttir Mannauðsstjóri, í síma 420 0703 eða í netfangi: thorey@airportassociates.com.

Auglýsandi

Airport Associates

Umsóknarfrestur til

24. september

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar