× Þessi auglýsing er útrunnin

Verkefnastjóri

Hjá Veitum er frábær starfsandi, mikil ánægja með stjórnendur og allur aðbúnaður fyrsta flokks. Við leggjum mikla áherslu á jafnvægi vinnu og einkalífs, sí- og endurmenntun og möguleika til að vaxa í starfi.

Við rekum stærsta veitukerfi landsins og starfsmenn okkar gegna mikilvægu hlutverki við að halda viðskiptavinum okkar í sambandi – alla daga.

Verkefnastjórar okkar takast á við fjölbreytt og krefjandi framkvæmdaverkefni og við leitum að drífandi starfsfélaga í hópinn. Við leggjum áherslu á faglega verkefnastjórnun og hvetjum alla okkar verkefnastjóra til að afla sér alþjóðlegrar IPMA vottunar.

Ef þú býrð yfir eldmóði, ert lipur í samskiptum, hefur reynslu af verkefnastjórnun ásamt prófi í verk- eða tæknifræði viljum við heyra í þér.

Við tökum á móti umsóknum á www.veitur.is þar sem nánari upplýsingar um starfið er að finna. Frekari aðstoð veitir Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@veitur.is. Umsóknarfrestur er til og með 19. september.

Auglýsandi

Veitur

Umsóknarfrestur til

19. september

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar