× Þessi auglýsing er útrunnin

Fagstjóri - kalt vatn

Hjá Veitum er frábær starfsandi, mikil ánægja með stjórnendur og allur aðbúnaður fyrsta flokks. Við leggjum mikla áherslu á jafnvægi vinnu og einkalífs, sí- og endurmenntun og möguleika til að vaxa í starfi.

Við rekum stærsta veitukerfi landsins og starfsmenn okkar gegna mikilvægu hlutverki við að halda viðskiptavinum okkar í sambandi – alla daga.

Framtíðarsýn og þróun er mikilvægur þáttur í góðum rekstri veitukerfa. Fagstjórar okkar gegna þar lykilhlutverki. Meðal fjölbreyttra verkefna er mótun framtíðarsýnar, gerð hermilíkans kerfisins og ábyrgð á hönnunarforsendum veitnanna.

Ef þú elskar að sökkva þér ofan í verkefni, hefur reynslu af hönnun veitukerfa, býrð yfir frumkvæði og skipulagshæfileikum viljum við heyra í þér.

Þú þarft próf í verk- eða tæknifræði og þekking á hermun er kostur.

Við tökum á móti umsóknum á www.veitur.is þar sem nánari upplýsingar um starfið er að finna. Frekari aðstoð veitir Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@veitur.is. Umsóknarfrestur er til og með 19. september.

Auglýsandi

Veitur

Umsóknarfrestur til

19. september

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar