× Þessi auglýsing er útrunnin

Þjónustufulltrúi á þjónustuborði HR

Þjónustuborð Háskólans í Reykjavík leitar að kraftmiklum einstaklingi í fjölbreytt starf þjónustufulltrúa. Starfið felst fyrst og fremst í samskiptum og þjónustu við nemendur HR. Um er að ræða 100% starf.

STARFSSVIÐ

  • Þjónusta og samskipti við nemendur
  • Almenn ráðgjöf og upplýsingagjöf til nemenda
  • Símvarsla
  • Vottorðagerð, gerð staðfestinga, greiðslukvittana, raðgreiðslusamninga ofl.
  • Vöktun á pósthólfum
  • Ýmis önnur almenn skrifstofustörf eftir þörfum

Í boði er spennandi starf í lifandi háskólaumhverfi. Starfið veitir ýmis tækifæri til að sýna frumkvæði með það að markmiði að skapa framúrskarandi náms- og vinnuumhverfi fyrir nemendur.

HÆFNISKRÖFUR

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun
  • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Mikil skipulagshæfni
  • Frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
  • Góð tölvukunnátta er skilyrði
  • Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
  • Fagmennska og vilji til að veita frábæra þjónustu

Nánari upplýsingar um starfið veita Guðrún Gyða Ólafsdóttir (gyda@ru.is), forstöðumaður þjónustusviðs, og Sigríður Elín Guðlaugsdóttir (sigridureg@ru.is), framkvæmdastjóri mannauðs. Umsóknarfrestur er til og með 25. september 2017 og skal umsóknum skilað á vef Háskólans í Reykjavík, hér að neðan. Farið er með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: Lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, ny?sköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3700 í fjórum deildum og starfa um 250 fastir starfsmenn við háskólann auk fjölda stundakennara.

Auglýsandi

Háskólinn í Reykjavík

Umsóknarfrestur til

25. september

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

rannsóknir, ráðgjöf, skrifstofustörf, forstöðumaður, framkvæmdastjóri, þjónustulund, almenn skrifstofustörf

Landsvæði

Flokkar