× Þessi auglýsing er útrunnin

Forseti tækni- og verkfræðideildar

Háskólinn í Reykjavík leitar að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu öflugrar tækni- og verkfræðideildar. Deildarforseti ber ábyrgð á rekstri deildarinnar og leiðir akademískt starf hennar. Deildarforseti heyrir undir rektor og situr í framkvæmdastjórn Háskólans í Reykjavík.

Leitað er að einstaklingi með:

  • Hæfni til að vinna að stefnumótun og uppbyggingu liðsheildar.
  • Doktorspróf á sviði verkfræði eða skyldra greina.
  • Reynslu af kennslu og rannsóknum á háskólastigi.
  • Reynslu af stjórnun, rekstri og mannaforráðum.
  • Hagnýta reynslu úr atvinnulífi eða af samstarfi við atvinnulífið.
  • Reynslu af alþjóðlegum vettvangi.

Innan tækni- og verkfræðideildar er fengist við kennslu og rannsóknir í verkfræði, tæknifræði, iðnfræði, íþróttafræði, byggingafræði og orkuverkfræði undir Iceland School of Energy (ISE) sem tilheyrir tækni- og verkfræðideild . Boðið er upp á nám á BSc-, MSc- og PhD-stigi. Um 1200 nemendur stunda nám við deildina og eru fastir starfsmenn um 50 talsins. Tækni- og verkfræðideild er aðili að alþjóðlegu samstarfsneti um þróun tæknináms sem kallast CDIO (e. Conceive, Design, Implement, Operate).

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Elín Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs (sigridureg@ru.is).

Umsóknum skal skilað á vef Háskólans í Reykjavík, hér að neðan. Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2017.

Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag með siðgæði, sjálfbærni og ábyrgð að leiðarljósi. Akademískar deildir háskólans eru fjórar: Lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfagleika, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 3.700 í fjórum deildum og starfa um 240 fastir starfsmenn við háskólann auk fjölda stundakennara.

Auglýsandi

Háskólinn í Reykjavík

Umsóknarfrestur til

15. október

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

stefnumótun, rannsóknir, verkfræði, framkvæmdastjóri, mannauðs,

Landsvæði

Flokkar