× Þessi auglýsing er útrunnin

Rafvirki

Hjá Veitum er frábær starfsandi, mikil ánægja með stjórnendur og allur aðbúnaður fyrsta flokks. Við leggjum mikla áherslu á jafnvægi vinnu og einkalífs, sí- og endurmenntun og möguleika til að vaxa í starfi. Við rekum stærsta veitukerfi landsins og úrræðagóðir starfsmenn gegna lykilhlutverki við að halda viðskiptavinum okkar í sambandi – alla daga.

Rafvirki

Rafvirkjar okkar sinna daglegum rekstri, eftirliti, viðhaldi í aðveitu- og dreifistöðvum og tengingum í há- og lágspennubúnaði. Þátttaka í nýframkvæmdum við háspennuvirki og bakvaktavinnu þar sem brugðist er við bilunum er jafnframt hluti þessa starfs.

Ef þú ert með sveinspróf í rafvirkjun eða sambærilega menntun, ert lipur í samskiptum, býrð yfir metnaði og frumkvæði og átt auðvelt með að vinna sjálfstætt viljum við heyra í þér. Reynsla af háspennurafvirkjun eða sambærilegum störfum er kostur.

Rekstraröryggi og hagkvæmni í rekstri er leiðarljós í öllum störfum starfsfólks okkar. Við leggjum áherslu á að byggja upp góðan hóp fagfólks sem annast rekstur og viðhald í öllum rafkerfum Veitna.

Við tökum á móti umsóknum á www.veitur.is þar sem nánari upplýsingar um starfið er að finna. Frekari aðstoð veitir Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@veitur.is.

Umsóknarfrestur er til og með 2. október.

 

 

Auglýsandi

Veitur

Umsóknarfrestur til

2. október

Tekið við umsóknum á

Landsvæði

Flokkar