Hjá Veitum er frábær starfsandi, mikil ánægja með stjórnendur og allur aðbúnaður fyrsta flokks. Við leggjum mikla áherslu á jafnvægi vinnu og einkalífs, sí- og endurmenntun og möguleika til að vaxa í starfi. Við rekum stærsta veitukerfi landsins og úrræðagóðir starfsmenn gegna lykilhlutverki við að halda viðskiptavinum okkar í sambandi – alla daga.
Verkamaður
Í þessu starfi vinnur þú í teymi með iðnaðarmanni og tekur þátt í fjölbreyttum verkefnum í rekstri og uppbyggingu dreifikerfa Veitna. Helstu verkefnin eru jarðvinna og aðstoð við iðnaðarmenn.
Samskiptahæfni og öryggisvitund eru eiginleikar sem reynir á í þessu starfi. Ef þú býrð yfir slíkri færni þá viljum við heyra í þér. Vinnuvélaréttindi og reynsla af jarðvinnu er kostur.
Rekstraröryggi og hagkvæmni í rekstri er leiðarljós í öllum störfum starfsfólks okkar. Við leggjum áherslu á að byggja upp góðan hóp fagfólks sem annast rekstur og viðhald í öllum rafkerfum Veitna.
Við tökum á móti umsóknum á www.veitur.is þar sem nánari upplýsingar um starfið er að finna. Frekari aðstoð veitir Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir mannauðsráðgjafi í netfanginu starf@veitur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 2. október.