DevOps sérfræðingur

Fjármálaeftirlitið 14. Nov 2018 Fullt starf

Við leitum að sérfræðingi til að bæta þróun og rekstur hugbúnaðarlausna okkar.

Upplýsingatæknisvið sér um þróun og innleiðingu eftirlitshugbúnaðar, móttöku og úrvinnslu gagna frá eftirlitsskyldum aðilum og þjónustu og rekstur tölvukerfa. Við leitum nú að sérfræðingi með reynslu af hugbúnaðarþróun og/eða kerfisrekstri, þekkingu á sjálfvirkum útgáfum og innbyggðum prófunum til að fylgja eftir hugbúnaðarlausnum okkar frá þróun til reksturs með umbætur og sjálfvirknivæðingu í huga.

Í boði eru spennandi verkefni í lifandi umhverfi fyrir einstakling sem hefur metnað fyrir stöðugum umbótum í útgáfu og rekstri á gæða hugbúnaði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Efla útgáfustjórnun og auka sjálfvirkni í útgáfu á hugbúnaðarlausnum

  • Efla sjálfvirkar prófanir á hugbúnaði og gögnum

  • Aðstoða við útgáfu á hugbúnaði og gagnagrunnum

  • Efla vöktun á afköstum, notkun og villum í kerfum eftirlitsins

  • Styðja við umsýslu og útgáfustjórnun gagnagrunna

Hæfnikröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða kerfisreksturs

  • Reynsla af hugbúnaðarþróun og/eða kerfisrekstri

  • Reynsla af innleiðingu eða nýtingu DevOps aðferðafræði kostur

  • Þekking á sjálfvirkum útgáfum, t.d. með Octopus Deploy

  • Þekking á útgáfustjórnun, t.d. með SVN, Bitbucket, Github eða TFS kostur

  • Þekking á gagnagrunnum og Microsoft hugbúnaðarumhverfinu kostur

  • Þekking á uppsetningu vöktunar á tölfræði um afköst, notkun og atvik kostur

  • Góð samskiptahæfni og áhugi á að starfa með hagsmunaaðilum að stöðugum umbótum


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsjón með starfinu hefur Bjarni Þór Gíslason upplýsingatæknistjóri (bjarnithor@fme.is) og Árni Ragnar Stefánsson mannauðsstjóri (arni@fme.is). Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is eða á www.starfatorg.is.

Umsóknarfrestur er til og með 19. nóvember nk. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.