Við leitum að manneskju í spennandi og krefjandi starf í tekjustýringarteymi Íslandshótela sem ber ábyrgð á online verðstýringu fyrir Grand Hótel, Hótel Reykjavík Centrum og öll Fosshótel.
Viðkomandi heyrir undir tekjustjóra en vinnur jafnframt náið með framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs. Um er að ræða tímabundið starf í eitt ár vegna afleysinga í fæðingarorlofi. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Greina verðsamkeppnina á netinu og framfylgja tekjustýringarstefnu með það að markmiði að hámarka tekjur
- Eftirlit með bókunum á okkar hótelum sem og lykildagsetningum langt fram í tímann
- Starfa náið með öllum okkar hótelum til að framfylgja stefnumótun á sem bestan hátt
- Skýrslugerð og greining til að upplýsa og bæta ákvörðunartöku
- Finna út ósamræmi í verðum og/eða tengingum og bregðast hratt við
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Skipulagshæfileikar og nákvæm vinnubrögð
- Gott vald á íslensku og ensku
- Mjög góð tölvukunnátta
- Eiga auðvelt með að starfa útfrá mælanlegum markmiðum
- Þekking á hótelkerfum
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á asmundur@islandshotel.is
Umsóknarfrestur er til 31. október.
Aðrar upplýsingar
Íslandshótel reka 17 hótel á Íslandi — Grand Hótel Reykjavík, Hótel Reykjavík og Fosshótel sem staðsett eru hringinn í kringum landið.
Auglýsandi
Íslandshótel
Umsóknarfrestur til
31. október