× Þessi auglýsing er útrunnin

Óskum eftir starfsfólki í Keflavík

Pósturinn leitar eftir starfsfólki til að sinna ýmsum störfum á Suðurnesjum. Við erum að leita eftir kraftmiklu og ábyrgðarfullu fólki til framtíðarstarfa. 

Bréfberi

Um er að ræða dreifingu á pósti í Keflavík. Hressandi útivera og við leitum eftir einstaklingi í fullt starf.

Bílstjórar

Um er að ræða útkeyrslu á sendingum á Suðurnesjum, þá einna helst Keflavík, Njarðvík og Grindavík.

Vinnutíminn er sveigjanlegur en á bilinu 07:30 til 15:45, fullt starf alla virka daga.

Starfsmenn í afgreiðslu

Um er að ræða almenna afgreiðslu, frágang sendinga og önnur tilfallandi störf á pósthúsinu.

Vinnutíminn er á bilinu 08:00 til 18:15, þ.e. á fljótandi vöktum. Þetta er fullt starf alla virka daga.

Hæfni

Óskað er eftir jákvæðum einstaklingum með ríka þjónustulund og góða samskiptafærni. Íslensku- og enskukunnátta er skilyrði fyrir starf í afgreiðslu og sem bílstjóri. 

 

Umsóknarfrestur er opinn þar sem mikilvægt er að einstaklingar geti hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar veitir: Anna María Guðmundsdóttir í síma 421-4300 eða í netfangi annam@postur.is

Íslandspóstur er með Gullmerki jafnlaunaúttektar PwC og hvetur jafnt konur sem karla til sækja um starfið.

Auglýsandi

Pósturinn

Umsóknarfrestur til

17. desember

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

Pósturinn Íslandspóstur Keflavík Grindavík Njarðvík Bílstjóri Bréfberi Afgreiðsla Pósthús

Landsvæði

Flokkar