× Þessi auglýsing er útrunnin

Amazing Westfjords - Verkefnastjóri

Amazing Westfjords auglýsir eftir öflugum verkefnastjóra. Leitað er að kraftmiklum og árangursdrifnum einstaklingi sem er tilbúinn til að takast á við spennandi og krefjandi verkefni sem framundan eru hjá fyrirtækinu.

Um er að ræða 25% hlutastarf fram í apríl 2018, en þá verður starfinu breytt í fullt starf. Æskilegast er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til og með 5. desember 2017.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Sala, tilboðsgerð, úrvinnsla og framkvæmd ferða báts í náttúrulífs siglingum fyrir ferðamenn, ráðstefnur og aðra viðburði, auk ferða fyrir farþega af skemmtiferðaskipum
  • Samskipti við innlenda samstarfsaðila og erlenda viðskiptavini
  • Sölu og markaðsmál
  • Umsjón með heimasíðu og facebooksíðu fyrirtækisins
  • Þátttaka í vöruþróun og hugmyndavinnu um nýjungar í ferðaþjónustu
  • Aðstoð við önnur verkefni á álagstímum

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða reynsla af starfi í ferðaþjónustu
  • Þekking á Íslandi og framboði ferðaþjónustu æskileg
  • Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Samskiptahæfni og þjónustulund
  • Skipulagshæfni
  • Geta til að vinna undir álagi
  • Góð almenn tölvukunnátta, þekking á excel er kostur
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti, önnur tungumálakunnátta er kostur

Aðrar upplýsingar

Umsóknir skulu sendar á netfangið baldur@snerpa.is. Umsóknum þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnar Ágúst Kristinsson í síma: 892-0660 eða í gegnum tölvupóst á rak@vivaldi.net. Nánari upplýsingar um fyrirtækið má nálgast á www.amazing-westfjords.is eða á facebook.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Amazing Westfjords er íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki með starfsstöð á Ísafirði. Fyrirtækið býður upp á siglingar um Ísafjarðardjúp þar sem viðskiptavinum gefst færi á að njóta einstaks útsýnis og skoða fjölbreytt dýralíf í sínu náttúrulega umhverfi.   

Markmið Amazing Westfjords er að virkja eldmóð og keppnisanda hjá hæfu, traustu og áhugasömu starfsfólki.  Starfsfólk Amazing Westfjords sýnir frumkvæði, þjónustulund og tekur virkan þátt í því að efla þjónustu og heildarhag fyrirtækisins með því að skara fram úr en styðja jafnframt hvert við annað og vinna saman.

Auglýsandi

Amazing Westfjords

Umsóknarfrestur til

5. desember

Tekið við umsóknum á

Stikkorð

Verkefnastjóri Ferðaþjónusta Ísafjörður Amazing Westfjords

Landsvæði

Flokkar