Starfsmaður á rafhjól óskast sem fyrst, viðkomandi mun koma sendingum til skila til viðskiptavina á rafhjóli.
Rafhjólin eru þægileg, umhverfisvæn og skemmtileg leið fyrir starfsfólk að koma sendingum til skila.
Pósturinn leitar að röskum, ábyrgðarfullum og jákvæðum einstaklingi í fullt starf sem hjólapóst.
Dreifing fer fram í Hveragerði og æskilegt er að viðkomandi sé með bílpróf.
Umsóknarfrestur er opinn þar sem mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Pósturinn er með Gullmerki jafnlaunaúttektar PwC og hvetur jafnt konur sem karla til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Elín Höskuldsdóttir í síma 482 3099 eða í netfangi elinh@postur.is.
Auglýsandi
Pósturinn
Umsóknarfrestur til
5. desember
Tekið við umsóknum á
Stikkorð
Selfoss Hveragerði Pósturinn Íslandspóstur bréfberi hjólapóstur rafhjól